Verð
Auðvitað er eina gagnasamþættingin sem fyrirtæki þurfa fyrir almenn ytri gögn.
Veður, viðburðir, umferð, flug, skóladagatöl, frídagar, hagtölur og fleira fyrir agenta/dreka, gagnavísindi og kerfin þín, í gegnum REST, MCP og SQL. Byrjaðu frítt og greiddu gegn reikningi þegar umfangið vex.
Frítt
Prófaðu gögnin og smíðaðu frumgerð.
0 kr.
á mánuði, án VSK
Gögnin ná
1 ár aftur · 7 dagar fram
- Innifalið1.000 fyrirspurnir á mánuði
- InnifaliðSkóladagatöl, frídagar og öll dagatöl
- InnifaliðREST-forritaskil
- InnifaliðMCP: 1 tenging í einu, til þróunar
- Innifalið1 notandi á aðganginum
Skráðu fyrirtækið fríttÁn greiðslukorts og án tímamarka.
Grunnur
Fyrir vöru eða líkan í rekstri.
7.500 kr.Kynningarverð
á mánuði, án VSK
Gögnin ná
3 ár aftur · 90 dagar fram
- Innifalið25.000 fyrirspurnir á mánuði
- InnifaliðMCP: 3 tengingar í einu
- InnifaliðMarkaðsdagatal: birtu eigin viðburði, tilboð og herferðir og haltu þeim lokuðum eða deildu þeim(væntanlegt)
- Innifalið1 notandi á aðganginum
Fá GrunnMánaðarlegur eða árlegur reikningur. Án greiðslukorts.
Fag
VinsælastFyrir teymi sem reiða sig á gögnin.
37.900 kr.Kynningarverð
á mánuði, án VSK
Gögnin ná
Öll sagan · allt sem er birt
- Innifalið250.000 fyrirspurnir á mánuði
- InnifaliðMCP: 20 tengingar í einu
- InnifaliðSamhengisagent sem styður A2A-samskipti við aðra agenta/dreka
- InnifaliðGagnastjórnborð: finndu gögn og smíðaðu fyrirspurnir, með niðurstöðum og REST- og SQL-dæmum
- InnifaliðBeinn SQL-aðgangur (Postgres-samhæfður) gegnum merkingarlagið
- InnifaliðMagnniðurhal: heilar raðir og söfn(væntanlegt)
- InnifaliðHægt að óska eftir nýjum heimildum
- Innifalið5 notendur á aðganginum
Fá FagMánaðarlegur eða árlegur reikningur. Án greiðslukorts.
Fyrirtæki
Úrvalsgögn eftir þörfum, magn og samningur sem hentar.
Samkvæmt samningi
Gögnin ná
Öll sagan · allt sem er birt
- InnifaliðMagn samkvæmt samningi
- InnifaliðÚrvalsgögn eftir þörfum (t.d. Trading Economics), samkvæmt leyfi veitandans
- InnifaliðSöfnun sérgagna til eigin nota
- InnifaliðGeymdu og birtu eigin tímaraðir, með aðgangi að gagnastjórnborðinu
- InnifaliðSamhengisagent sem styður A2A-samskipti við aðra agenta/dreka
- InnifaliðMCP: ótakmarkaðar tengingar
- InnifaliðFastur tengiliður og þjónustusamningur (SLA)
audvitad@snjallgogn.is
Tímabilið segir hversu langt gögnin ná um forritaskilin og MCP. Dagatöl (skóladagatöl, frídagar og tegundir daga) fylgja í heild öllum leiðum, líka Frítt. Á vefnum sér fyrirtæki í Frítt ár aftur og viku fram, og í greiddum leiðum ár aftur og 60 daga fram. Súlurnar eru á sama kvarða: fimm ár aftur, eitt ár fram.
- Engir óvæntir reikningarVið mörkin stöðvast fyrirspurnir. Við rukkum aldrei meira en þú valdir.
- Skiptu hvenær sem erUpp eða niður, mánaðarlega eða árlega. Lyklarnir þínir halda áfram að virka.
- Reikningur, ekki kortFyrir greiddar leiðir færðu mánaðarlegan eða árlegan reikning í krónum.
Leiðirnar bornar saman
Allt sem fylgir hverri leið, flokkað. Hver liður er útskýrður í einni línu.
Leyfisréttindin eru enn í drögum. Úrvalsgögn fylgja alltaf leyfi veitandans og sumar opnar heimildir fara fram á að þeirra sé getið.
Hvað þarftu mikið?
Ein fyrirspurn er eitt REST-kall eða eitt MCP-verkfærakall. Þrjú dæmi:
- Veður og viðburðir fyrir 20 verslanir einu sinni á dag: 20 × 2 × 30 = 1.200 fyrirspurnir á mánuði → Grunnur.
- Umferð á 10 teljurum á klukkustundarfresti: 10 × 24 × 30 = 7.200 fyrirspurnir á mánuði → Grunnur.
- Agent/dreki sem svarar 50 spurningum á dag, um 4 verkfæraköll hver: 50 × 4 × 30 = 6.000 fyrirspurnir á mánuði → Grunnur, með MCP.
Spurningar og svör
Hvað telst fyrirspurn?
Hver fyrirspurn er ein eining: eitt REST-kall eða eitt MCP-verkfærakall, sama hvað það skilar. Það telst ekki með að skoða þennan vef, ekki heldur gögnin að baki hverjum hluta.
Engir óvæntir reikningar: við mörkin stöðvast fyrirspurnir (HTTP 429). Við rukkum aldrei meira en þú valdir. Bættu við þegar þér hentar.
Við mörkin færðu HTTP 429 með Retry-After-haus. Mínútumörkin losna innan mínútu. Mánaðarkvótinn endurnýjast 1. hvers mánaðar og þangað til tekur keypt inneign við.
Hvernig skipti ég um leið?
Skiptu hvenær sem er, hér eða á aðgangssíðunni. Stjórnandi fyrirtækisins biður um leiðina og við staðfestum, yfirleitt samdægurs á virkum degi.
Upp: ný mörk gilda um leið og við staðfestum, og mismunurinn kemur hlutfallslega á næsta reikning.
Niður: tekur gildi í lok greidds tímabils (mánaðar eða árs), svo að þú haldir því sem þú hefur greitt fyrir. Lyklar og notendur umfram mörk nýju leiðarinnar eru fjarlægðir í samráði við þig.
Hvernig er greitt?
Reikningur fyrir greiddar leiðir er sendur mánaðarlega eða árlega, í krónum eða evrum, auk VSK. Ef greitt er árlega færðu 12 mánuði á verði 10. Hvorki greiðslukort né greiðslusíða.
Kláraðist inneignin? Keyptu meiri á aðgangssíðunni: 10.000 fyrirspurnir á 1.500 kr.. Keypt inneign nýtist eftir að fyrirspurnir mánaðarins eru búnar og fyrnist ekki.
Hver er munurinn á því að kynna sig og skrá fyrirtækið?
Ef þú kynnir þig með vinnunetfanginu opnast 90 dagar aftur og 7 dagar fram á vefnum. Ekkert lykilorð, enginn aðgangur og enginn API-aðgangur.
Ef þú skráir fyrirtækið opnast ár aftur á vefnum og þú færð API-lykla. Frítt nær viku fram, bæði á vefnum og um forritaskilin. Greiddar leiðir sýna 60 daga fram á vefnum og hversu langt gögnin ná um forritaskilin og MCP fer eftir leiðinni.
Get ég prófað áður en ég borga?
Já. Frítt nær yfir öll gögnin nema úrvalsgögn (skóladagatöl og frídagar meðtalin), ár aftur og viku fram. Það er takmarkað að magni og ekki til notkunar í atvinnuskyni. Byggðu á því og færðu þig upp þegar þú ferð í loftið.
Af hverju skiptir tímabilið máli?
Verðmætið liggur í sögunni og sýninni fram á við. Löng saga nýtist til að þjálfa líkön og bera saman við venjulegt ár, löng sýn fram á við til að skipuleggja. Frítt nær ár aftur, Grunnur þrjú ár og Fag alla söguna, sem fyrir veður nær aftur til 2015, með 25 ára meðaltölum.
Hversu ný eru gögnin?
Hver heimild uppfærist á sínum hraða, allt frá tíu mínútna fresti (umferðarteljarar) til einu sinni í mánuði (hóteltölur). Á síðunni Gögnin sérðu hversu ný hver heimild er.
Ná gögnin út fyrir Ísland?
Gögnin ná yfir Ísland. Frídagar, sól og tungl og sumar uppflettingar virka hvar sem er. Hafðu samband ef þú þarft önnur lönd.
Geta agentar/drekar notað gögnin?
Já. MCP fylgir Grunni og ofar (þrjár tengingar í einu í Grunni, tuttugu í Fagi og ótakmarkaðar í Fyrirtæki), svo Claude, Cursor og aðrir agentar/drekar geta sótt gögnin beint. Fag og Fyrirtæki fá líka samhengisagent sem talar við aðra agenta/dreka um A2A. Á síðunni Sækja gögn sérðu hvernig á að tengjast.
Getum við sótt gögnin í heild?
Í Grunni sækirðu gögnin að baki hverri sýn á vefnum. Fag og Fyrirtæki fá magnniðurhal heilla raða og safna (væntanlegt) og í leiðinni Fyrirtæki geturðu líka fengið eigið gagnasvæði, innan leyfis hverrar heimildar.
Byrjaðu í dag
Ár aftur og vika fram, öll dagatöl í heild og REST-lykill á einni mínútu. Án greiðslukorts.