Fréttir
Helstu skrefin í Auðvitað og gögnunum sem það býður, nýjust fyrst.
september 2026
Skóladagatöl: 16.216 → 36.674 viðburðirGögnin
Frí, starfsdagar, skólasetning og skólaslit, foreldraviðtöl og próf frá 544 skólum á öllum skólastigum, leikskólum og tónlistarskólum meðtöldum, auk sameiginlegra dagatala 46 sveitarfélaga. Áður 16.216 viðburðir frá 308 stofnunum. Flestir ná yfir skólaárin 2016–2027.
SkoðaAðgangur fyrirtækjaLausnin
Leiðin ræður hve langt aftur og fram gögnin ná, eins á vef og í API, og glugginn færist með tímanum. Panta má leið á vefnum, sjá notkun eftir dögum og lyklum, bjóða samstarfsfólki og nota API-lykilinn í öllum MCP-biðlurum.
SkoðaEftirspurnarvaldar: 1.060 → 7.308Gögnin
Safnið stækkar úr um 1.060 í 7.308 viðburði á árunum 2017–2027: bæjarhátíðir, íþróttamót, átök verslanakeðja, ráðstefnur, réttir og útsölutímabil, hver með vísun í heimild og enginn tvítalinn. Síðan er hver staðbundinn viðburður á réttum stað eða tekinn út (7.219).
SkoðaMetnir ferðamannastaðirGögnin
Mat á 2.191 ferðamannastað bætist við staðina sem Afþreying byggir tillögur sínar á.
Heimild: Ferðamálastofa
AfþreyingLausnin
43 tegundir afþreyingar fá einkunn 0–100 fyrir stað, stund og þann tíma sem er til ráðstöfunar, eftir veðri, birtu, aðstöðu í nágrenninu, opnunartímum og viðburðum.
Veður borið saman við 25 ára söguGögnin
Hvort veðrið er hlýrra, hvassara eða votara en venjulega miðast nú við 25 ára sögu veðurstöðvarinnar í stað um þriggja ára spágagna.
Staðir, leiðir og ferðatímasvæðiGögnin
Áhugaverðir staðir, leiðir, ferðatímasvæði og kortahlutir á Íslandi fást sem venjuleg gögn í fyrirspurnum.
Heimild: OpenStreetMap
Svar strax og samantektirLausnin
Sá sem spyr fær strax það sem er til og restina síðar, í stað þess að bíða eftir hægri gagnaveitu. Tímaraðir eru teknar saman á þjóninum, og leiðbeiningar, API-lýsing og stjórnborð eru á vefnum.
SkoðaAuðvitað í prufuútgáfuLausnin
Fyrsta útgáfan opnuð án kynningar, til að prófa og bæta. Veldu stað og dag og sjáðu á korti allt sem vitað er um hann: veður miðað við meðallag, viðburði og íþróttir, flug og skemmtiferðaskip, umferð nánast í rauntíma, náttúruvá, skóladagatöl, eftirspurnarvalda, gengi og hagvísa, sjónvarpsdagskrá og staði í grennd, með gögnunum á bak við hvern hluta til niðurhals. Með vinnunetfangi sést 90 daga aftur og viku fram; fyrirtæki skrá sig frítt, fá API-lykla fyrir REST og MCP og velja leið.
Heimildir: Veðurstofa Íslands, Belgingur, Vegagerðin, Isavia, Ferðamálastofa, Gjugg, Tix.is, TheSportsDB, Trading Economics, Simply.TV, OpenStreetMap
Skoða


