Um Auðvitað
Eina gagnasamþættingin sem fyrirtæki þurfa fyrir almenn ytri gögn. Íslensk samhengisgögn í hæsta gæðaflokki fyrir agenta/dreka og gagnavísindi.
Auðvitað safnar saman því sem vitað er um hvaða stað og dag sem er á Íslandi: veðrinu og hvernig það er miðað við meðallag, viðburðum, umferð, flugi og skemmtiferðaskipum, frídögum og skóladögum, viðvörunum og náttúruvá, mörkuðum og efnahag, og því sem er í grenndinni.
Hver sýn birtir gögnin að baki sér og þín eigin kerfi fá sömu gögn með einni fyrirspurn.
Fyrir hverja
Agentar/drekar
Gefðu agentinum/drekanum samhengi Íslands um MCP. Hann finnur réttu gögnin og sækir þau sjálfur.
Tengja um MCPGreinendur og skipuleggjendur
Flettu upp stað og degi á þessum vef og sjáðu allt sem mótaði hann.
Skoða stað og dagHvernig við vinnum
- Gögnin á bak við hverja sýn
- Hver hluti sýnir sín gögn og fyrirspurnirnar sem sóttu þau.
- Heimilda getið
- Hver heimild er nefnd ásamt leyfi sínu. Sjá heimildir.
- Ísland fyrst
- Ítarleg, staðbundin og fersk gögn áður en við förum víðar.
Sagan
Þegar við í Snjallgögnum búum til spálíkön og annað slíkt notum við upplýsingar um ytri aðstæður, eftirspurnarhvata og fleira sem bætir spárnar, án þess að nýta persónuupplýsingar af nokkru tagi.
Árið 2020 fengum við styrk frá Tækniþróunarsjóði til að búa til þekkingargraf fyrir gagnavísindi og gervigreind: einn stað þar sem fyrirtæki og stofnanir geta nálgast öll ytri gögn með einföldum hætti.
Vegna alls konar krókaleiða tók það mun lengri tíma en okkur óraði fyrir.
Nú er þessi nýja gagnaþjónusta loksins komin í loftið: Auðvitað!
Hér á vefnum sérðu sýnishorn af gögnunum í „Skoða“: hvað er um að vera á hverjum stað, hvaða dag sem er. Á bak við það eru gögnin sjálf, sem hægt er að sækja í eigin kerfi og til agenta/dreka í gegnum API, MCP eða SQL.
Snjallgögn
Auðvitað er frá Snjallgögnum ehf., íslensku fyrirtæki sem smíðar hagnýt gervigreindar- og gagnavísindatól fyrir atvinnulífið.
Meðal annarra vara fyrirtækisins eru gervigreindaraðstoðarmaðurinn Mímir, Þjónustugreind fyrir þjónustuteymi og Eftirspurnargreind fyrir verslun og ferðaþjónustu.
Nánar á snjallgogn.isHvað vantar þig?
Byrjaðu frítt með lykli á einni mínútu eða segðu okkur hvaða gögn þú þarft.





