Allt á einu sniði, með einum lykli, tilbúið fyrir kerfin þín og agenta/dreka.
Án greiðslukorts. Ár aftur og vika fram.
Við semjum við heimildirnar, samræmum snið, staði og tíma og vöktum straumana. Þú tengist einu sinni.
Claude, Cursor og aðrir agentar/drekar tengjast með MCP og finna gögnin sjálfir. REST og SQL fyrir kerfin.
Hver heimild er nafngreind með leyfi sínu, hverri sýn fylgja gögnin að baki henni og takmarkanir koma skýrt fram.
Hvert svar fæst með einu kalli. Smelltu á dæmi til að sjá það á raunverulegum stað í dag.
Fjórtán söfn, sum uppfærð á tíu mínútna fresti, önnur mánaðarlega.
Mælingar og spár fyrir hvaða punkt sem er, bornar saman við 25 ára meðaltal.
Öll gögnin um eitt forritaskil. Sama leit, sama svar, sama tímabelti.
Ein lína og Claude eða annar agent/dreki finnur gögnin sjálfur (ein þróunartenging í Frítt).
claude mcp add --transport http audvitad https://audvitad.snjallgogn.is/mcpPostgres-samhæfður aðgangur fyrir BI og greiningu, í Fagi og Fyrirtæki.
Vantar þig gögn? Segðu okkur hvað þú þarft.
Ár aftur og vika fram, skóladagatöl og frídagar í heild og REST-lykill á einni mínútu. Án greiðslukorts.
Viðvaranir Veðurstofunnar með svæðum, jarðskjálftar og staða eldstöðva.
Tónleikar, sýningar, leikhús og fleira, með stað, tíma og verði.
Leikjadagskrá með liðum, völlum og tímum.
Frídagar, helgar, árstíðir, sól og tungl, og hvers konar dagur það er.
Frídagar, lokanir, próf og annaskil grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla.
Tilboð, mót, hátíðir og tyllidagar sem hafa áhrif á eftirspurn.
Ökutæki talin í hvora átt á vegum landsins.
Komur og brottfarir um Keflavík og skemmtiferðaskip með farþegafjölda.
Hótelrými, nýting og gistinætur.
Áhugaverðir staðir, heimilisföng, vegir, leiðir og aksturstími.
Finnur stað út frá heiti, heimilisfangi, hnitum, IP-tölu, símanúmeri, netfangi eða vefslóð.
Gengi krónunnar, hagvísar, vísitölur, hrávörur og hagdagatal.
Dagskrá RÚV, Sýnar og fleiri stöðva, viku fram í tímann.
Allt á vefnum kemur frá heimildunum hér að neðan. Þeirra er getið hér og í gögnunum á bak við hvern hluta.
Afleidd gögn sem Snjallgögn reikna eða taka saman úr opnum gögnum og dreifðum heimildum. Við búum aðeins til afleidd gögn og eingöngu úr opnum gögnum. Allt annað á vefnum tilheyrir heimildunum sjálfum og þeirra er getið hér að neðan.
Starfsdagar, frídagar, próf og annaskil skóla, leikskóla og tónlistarskóla, sótt í dagatöl skólanna og sveitarfélaganna sjálfra.
Tilboðsdagar, mót, hátíðir og aðrir viðburðir sem hafa áhrif á eftirspurn á Íslandi, í samantekt Snjallgagna.
Hvers konar dagur hver dagur er. Snjallgögn reikna erkitýpurnar úr opnum gögnum fyrir hvaða stað og dag sem er.
Hvers konar veður hver dagur ber með sér miðað við venjulegt veður á staðnum. Snjallgögn reikna erkitýpurnar úr veðurgögnum Veðurstofu Íslands og Belgings.
Hvers konar staður hver staður er. Snjallgögn reikna erkitýpurnar úr opnum gögnum.
Hversu mikið er um að vera á svæðinu dag frá degi. Snjallgögn reikna vísitöluna úr opnum gögnum til nota í líkönum, spám og fleiru.
Margt af þessu byggist á einkaaðilum og úrvalsgögnum. Takk fyrir að deila gögnunum ykkar með okkur.
Úrvalsgögn frá þriðja aðila, svo sem frá Trading Economics, eru háð leyfi veitandans og fást aðeins í gegnum forritaskilin þar sem leyfið nær til. Sjá verð.
Við þökkum opinberum stofnunum sem birta gögnin sín og öllum sem kortleggja Ísland á OpenStreetMap.
Veðurspár og veðurgögn fyrir meira en 2.000 staði um allt land og 25 ára meðaltöl sem hver dagur er borinn saman við.
Gengi krónunnar, íslenskir hagvísar, markaðsverð (ICEX, 10 ára ríkisskuldabréf, ál, Brent-hráolía, lax, bitcoin) og útgáfudagatal hagtalna.
Íþróttaleikir á Íslandi og hvar þeir fara fram.
Dagskrá íslensku sjónvarpsstöðvanna, viku fram í tímann.
Viðburðir í miðasölu: tónleikar, leiksýningar og aðrar sýningar.
Viðburðaskrá PromoGogo alls staðar að af landinu: hvað er á döfinni, hvar og hvenær.
Sólarupprás og sólsetur, tunglið, dagslengd, almennir frídagar, helgar og árstíðir, reiknað fyrir hvaða stað og dag sem er.
Veðurathuganir, veðurviðvaranir, jarðskjálftar og tilkynningar um eldstöðvar.
Umferðartalningar frá teljurum um allt land, á 10 eða 15 mínútna fresti og eftir dögum.
Framboð hótelgistingar og gistinætur eftir landshlutum, og komur skemmtiferðaskipa.
Komur og brottfarir á Keflavíkurflugvelli.
Mánaðarlegar kranaskoðanir, vísbending um umsvif í byggingariðnaði.
Staðir, heimilisföng og vegir: staðaleit, hvað er í grenndinni, upplýsingar um vegi og leiðir.
Bakgrunnur kortsins.